26.10.2007
Til stuðnings rannsóknum á brjóstakrabbameini
Heiðurskonur sem sækja handverks- vinnustofuna á Skólabraut mættu allar í einhverju bleiku til stuðnings rannsóknum á brjóstakrabbameini.
17.10.2007
Deiliskipulag íþrótta- og skólasvæðis samþykkt
Breyting á deiliskipulagi fyrir íþrótta- og skólasvæði var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar á dögunum. Breytingartillagan hefur farið í gegnum lögformlegt ferli sem grundvallast á skipulags- og byggingarlögum og hefur verið send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
15.10.2007
Rekstur bæjarins í traustum skorðum
Endurskoðuð fjárhagsáætlun Seltjarnarness fyrir árið 2007 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar nýlega. Niðurstöður endurskoðaðar fjárhagsáætlunar bera með sér að fjárhagsstjórn bæjarsjóðs er í traustum skorðum.
11.10.2007
Skólalóð Grunnskóla Seltjarnarness stækkar
Stór hluti fasteignarinnar að Skólabraut 1 hefur verið í eigu Seltjarnarnesbæjar um nokkurt skeið. Nýverið gekk bærinn hins vegar frá samningum um kaup á öllu húsnæðinu. Með kaupunum skapast svigrúm til að stækka enn frekar skólalóð Grunnskóla Seltjarnarness.
04.10.2007
Bættur hagur foreldra á Seltjarnarnesi
Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur samþykkt viðamiklar breytingar á styrkjum, eða svokölluðum heimgreiðslum, til foreldra barna sem ekki hafa náð leikskólaaldri. Samkvæmt samþykktinni, er tekur gildi um áramót, mun bærinn greiða foreldrum styrk frá því foreldraorlofi lýkur. Heimgreiðslurnar eru skattfrjálsar samkvæmt lagabreytingum frá sl. áramótum.
03.10.2007
Grunnskóli Seltjarnarness leiðir verkefnið "Göngum í skólann"
Alþjóðlega verkefnið „Göngum í skólann“ var kynnt á dögunum en Grunnskóli Seltjarnaness leiðir verkefnið fyrir hönd Íslands sem tekur þátt í fyrsta sinn. Markmiði með verkefninu er að hvetja börn til aukinnar hreyfingar og auka færni þeirra í að ganga öruggustu leiðina í skólann.
27.09.2007
Lækningaminjasafn Íslands rís á Seltjarnarnesi
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, menntamálaráðherra, Anna Guðný Ásgeirsdóttir fjármálastjóri Þjóðminjasafns Íslands fyrir hönd Þjóðminjavarðar og formenn Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur hafa undritað samning um byggingu og rekstur húsnæðis fyrir Lækningaminjasafn Íslands og aðra menningartengda starfsemi.
21.09.2007
Umferðareftirlit Slysavarnadeildar kvenna á Seltjarnarnesi og dreifing endurskinsmerkja til barna í Grunnskóla Seltjarnarness
Fimmtudaginn 20. september fylgdust félagskonur í Slysavarnadeildinni Vörðunni á Seltjarnarnesi með umferð í kringum Mýrarhúsaskóla. Voru þær staðsettar á þeim stöðum sem foreldrar koma akandi með börnin sín og bentu á það sem betur mætti fara.
19.09.2007
Ársskýrsla Seltjarnarness 2006 gefur til kynna traustan hag og bjarta framtíð
Ársskýrsla Seltjarnarness fyrir árið 2006 er komin út og hefur henni verið dreift á hvert heimili líkt og undanfarin ár.
18.09.2007
Óskað eftir svörum frá heilbrigðisráðuneytinu
Framkvæmdir við byggingu hjúkrunarheimilis á Lýsislóðinni á horni Grandavegar og Eiðisgranda eiga samkvæmt samningi að hefjast í byrjun næsta árs. Í maí 2006 var undirritað, að frumkvæði Seltjarnarnesbæjar, þríhliða samkomulag við Reykjavíkurborg og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið um byggingu á hjúkrunarheimili á Lýsislóðinni.