
31.01.2025
Benóný Breki og Eir Chang íþróttamenn Seltjarnarness 2024
Kjör íþróttamanns Seltjarnarness 2024 í karla- og kvennaflokki fór fram fimmtudaginn 30. janúar í 31. skipti við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu.

31.01.2025
Bæjarstjórnarfundur 5. febrúar 2025 dagskrá
Boðað hefur verið til 999. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 5. febrúar 2025 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.

31.01.2025
Fyrirhugað verkfall í Leikskóla Seltjarnarness
Boðað verkfall félagsmanna í KÍ í Leikskóla Seltjarnarness hefst mánudaginn 3. febrúar ef samningar nást ekki fyrir þann tíma. Forráðamenn eru hvattir til að fylgjast með fjölmiðlum um hvort komi til verkfalls.

30.01.2025
Innritun 6 ára barna fyrir skólaárið 2025-2026
Dagana 3.-7. febrúar stendur yfir innritun í Mýrarhúsaskóla fyrir börn fædd árið 2019 sem eiga að hefja skólagöngu sína í haust.

29.01.2025
Lokun á vatni í Bollagörðum 30/01/2025
Íbúar í Bollagörðum athugið!
Fimmtudaginn 30. janúar verður lokað fyrir vatnið frá klukkan 10 og fram eftir degi vegna viðgerða.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem að þetta kann að valda
Seltjarnarnesbær
S: 5959100

28.01.2025
Vetrarþjónusta & sorphirða - Þjónustusvæði
Íbúar eru hvattir til að vera upplýstir um hvað teljist til þjónustusvæðis Seltjarnarnesbæjar hvað varðar snjóruðning og hvaða svæði íbúar og húsfélög þurfa sjálf að ryðja og salta svo hægt sé að þjónusta sorphirðu.

27.01.2025
Snjór tefur sorphirðu, muna að moka!
Íbúar eru hvattir til að moka frá sorptunnum sínum og tryggja gott aðgengi að þeim svo hægt verði að losa þær.

23.01.2025
Leikskólakennarar með 136 ára starfsaldur kvaddar
Anna, Arna og Þórdís sem sameiginlega hafa starfað á Leikskóla Seltjarnarness í hartnær 100 ár voru kvaddar með virktum í dag í salnum á Mánabrekku.

20.01.2025
Frítt í sund fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri
Bæjarstjórn samþykkti í lok árs 2024 fella í fyrsta sinn niður gjaldtöku í Sundlaug Seltjarnarness fyrir aldurshópinn 0-18 ára.

17.01.2025
Bæjarstjórnarfundur 22. janúar 2025 dagskrá
Boðað hefur verið til 998. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 22. janúar 2025 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.

15.01.2025
Mánaðarleg innheimta Hitaveitu Seltjarnarness
Frá og með janúar 2025 verða reikningar hitaveitunnar innheimtir mánaðarlega í stað þess að innheimta reikninga hitaveitunnar á 2ja mánaða fresti.

14.01.2025
Meira um sorphirðu í byrjun árs
Terra vinnur hörðum höndum að því að vinna upp seinkun á losun sorps vegna veðurs og veikinda. Á morgun miðvikudag lýkur losun á matvælum og blönduðum úrgangi og á fimmtudag hefst losun á plasti og pappa, tveir bílar verða á ferðinni og byrja á Ströndunum, Mýrinni og Eiðistorgi. Terra stefnir að því að ljúka losun á pappír og plasti á föstudaginn á öllu Nesinu.