Fara í efni

Fréttasafn

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Lokun á heitu vatni 7/5/2025
06.05.2025

Lokun á heitu vatni 7/5/2025

Íbúar vinsamlegast athugið! Miðvikudaginn 7. maí verður lokað fyrir heita vatnið á hluta Suðurstrandar, Selbrautar, Sólbrautar, Skerjabrautar, Tjarnastígs, Tjarnabóls, Lambastaðavegs og Nesvegs frá klukkan 15 og fram eftir degi vegna viðgerða. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda Hitaveita Seltjarnarness S: 5959100
Lokun á heitu Vatni 5/5/2025
04.05.2025

Lokun á heitu Vatni 5/5/2025

Íbúar í Mýrinni vinsamlegast athugið! Mánudaginn 5 maí verður lokað fyrir vatnið frá klukkan 10 og fram eftir degi vegna viðgerða. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Hitaveita Seltjarnarness s: 5959100
Varptíminn er hafinn! Sumarlokun í Gróttu og hundabann á Vestursvæðunum
02.05.2025

Varptíminn er hafinn! Sumarlokun í Gróttu og hundabann á Vestursvæðunum

Ferðabann um friðlandið við Gróttu hefur tekið gildi og stendur frá 1. maí - 31. júlí. Hundabann gildir á sama tíma á Vestursvæðunum og eru kattaeigendur hvattir til að hafa kettina í bandi eða halda þeim innandyra.
Leikskóli Seltjarnarness heimsóttur á alþjóðlegum leiðtogafundi
28.04.2025

Leikskóli Seltjarnarness heimsóttur á alþjóðlegum leiðtogafundi

Alþjóðlegur leiðtogafundur um málefni kennara (ISTP) fór fram hér á landi dagana 24.-26. mars 2025. Leiðtogafundurinn, sem haldinn var í 15. sinn, er samstarfsverkefni Íslands, OECD og Alþjóðsamtaka kennara (EI) og voru um 230 þátttakendur frá 23 ríkjum.
Bæjarstjórnarfundur 23. apríl 2025 dagskrá
18.04.2025

Bæjarstjórnarfundur 23. apríl 2025 dagskrá

Boðað hefur verið til 1005. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 23. apríl 2025 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
Jákvæður viðsnúningur á rekstri bæjarins
10.04.2025

Jákvæður viðsnúningur á rekstri bæjarins

Ársreikningur Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2024 sem var samþykktur á fundi bæjarstjórnar þann 9. apríl sýnir jákvæðan viðsnúning í rekstri bæjarins. Helstu ástæður eru aukið aðhald í rekstri og mótvægisaðgerðir.
Stóri Plokkdagurinn 27. apríl 2025
10.04.2025

Stóri Plokkdagurinn 27. apríl 2025

Seltjarnarnesbær hvetur íbúa og alla sem vettlingi geta valdið að taka þátt í deginum og plokka hvort sem er í sínu nærumhverfi eða á vel völdum svæðum hér á Seltjarnarnesinu.
Bæjarstjórnarfundur 9. apríl 2025 dagskrá
04.04.2025

Bæjarstjórnarfundur 9. apríl 2025 dagskrá

Boðað hefur verið til 1004. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 9. apríl 2025 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
02.04.2025

Lokað á bæjarskrifstofu vegna starfsdags

Fimmtudaginn 3. apríl verður þjónustuver og bæjarskrifstofa Seltjarnarnesbæjar lokuð vegna starfsdags. Finna má helstu símanúmer og netföng stofnana og starfsfólks hér á heimasíðunni auk þess sem senda má tölvupóst á postur@seltjarnarnes.is. Opið verður eins og venjulega föstudaginn 4. apríl.
Góð stemning í glerinu
02.04.2025

Góð stemning í glerinu

Það er alltaf nóg um að vera í félagsstarfi eldri bæjarbúa eins og sjá má á þessari skemmtilegu mynd sem tekin var í dag þegar að kíkt var óvænt inn á glernámskeiðið í Félagsheimilinu. Stemningin var aldeilis góð, spjallað og hlegið um leið og unnið var hörðum höndum að listaverkunum enda styttist í handverkssýninguna sem haldin verður í maí.
Skólalóð Mýrarhúsaskóla iðar af lífi
01.04.2025

Skólalóð Mýrarhúsaskóla iðar af lífi

Fyrsta áfanga í endurbótum á skólalóðinni lokið en búið er að bæta við mörkum á sparkvöllinn og setja upp þrjú trampólin með öruggu undirlagi.
Bæjarstjórnarfundur 2. apríl 2025 dagskrá
28.03.2025

Bæjarstjórnarfundur 2. apríl 2025 dagskrá

Boðað hefur verið til 1003. bæjarstjórnarfundar kl. 17:00 miðvikudaginn 2. apríl 2025 í bæjarstjórnarsalnum að Austurströnd 2.
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?