Félagsheimili Seltjarnarness sem vígt var við hátíðlega atöfn þann 20. mars 1971 hefur ætíð skipað sérstakan sess í hjörtum okkar Seltirninga enda þjónað okkur og öðrum á afar fjölbreyttan hátt í rúm 50 ár.
Vandað var vel til verka við hönnun og byggingu Félagsheimilisins sem byggt var af Sigurði Kr. Árnasyni byggingameistara. Þrátt fyrir ýmsar lagfæringar í gegnum tíðina þá var heildstæð viðhaldsþörf félagsheimilsins orðin mjög brýn. Löngu tímabærar endurbætur hófust haustið 2020 enda flest allt í húsinu upprunalegt og stóðst ekki lengur nútímakröfur sbr. lögbundnar brunavarnir, vatnslagnir, raflagnir, fráveita, öryggismál o.fl. auk þess sem innréttingar og innanstokksmunir höfðu látið verulega á sjá. Endurbætur Félagsheimilisins miða að því að færa húsið til nútímans án þess þó að það missi sín ákveðnu útlitseinkenni og sjarma sem hefur einkennt það alla tíð.
Í Morgunblaðinu þann 23. mars árið 1971 er sagt frá því að Félagsheimili Seltjarnarness hafi verið opnað við hátíðlega athöfn þann 21. mars síðastliðinn. Dagskráin hófst með því að Lúðrasveit Mýrarhúsaskóla lék og síðan lýsti sveitarstjóri Sigurgeir Sigurðarson húsinu fyrir viðstöddum sem er sögð hafa verið mjög fjölmenn. Karl B. Guðmundsson opnaði húsið og þá tóku við ávörp en í lok samkomunnar söng kór Kvenfélags Seltjarnarness.
Margvísleg starfssemi hefur farið fram í húsinu frá upphafi, það má segja að það sé hjarta bæjarbúa og flestir Seltirningar eiga þaðan góðar minningar. Í Félagsheimilinu hafa verið sýndar leiksýningar, haldnir tónleikar, nemendasýningar, útskriftir, dansleikir, brúðkaupsveislur, afmæli og erfidrykkjur. Þar hafa verið haldin þorrablót, fundir, ráðstefnur og hvers kyns mannamót.
Sigurður Kr. Árnason, 1925-2017, var húsasmíðameistari og listmálari. Hann beitti sér fyrir ýmsum framfaramálum í bæjarfélaginu, stofnaði m.a. Rótarýklúbb Seltjarnarness og vann að eflingu Náttúrufræðisafns Seltjarnarness. Var einn af stofnendum Stjörnuskoðunarfélagsins og gaf félaginu stjörnukíkinn í Valhúsaskóla. Í starfinu sínu sem húsasmíðameistari kom hann að byggingu nokkura af helstu stofnana í bænum m.a. íþróttahússins, Valhúsaskóla, Seltjarnarneskirkju svo dæmi séu tekin.
Gagngerar endurbætur - heildarútlit að þeim loknum verður í takt við upprunann en uppfyllir nútímakröfur og öryggisstaðla
Árið 2020 var gerð verkfræðileg ástandskönnun á Félagsheimilinu og síðar sama ár tók bæjarráð ákvörðun um að nýta samkomutakmarkanir í Covid-19 faraldrinum til að hefja vinnu við alsherjar endurbætur á húsnæðinu samhliða öðrum verkefnum á vegum bæjarins. Sértækar úttektir, ástandsmat og ráðgjöf varðandi endurbætur á einstökum verkþáttum hafa verið gerðar af viðeigandi fagaðilum eftir því sem þörf hefur krafið en í mörg horn er að líta og verkefnið viðamikið. Helstu samstarfsaðilar Seltjarnarnesbæjar í verkefninu fram til þessa eru AVH arkitektar, Liska, Verkís, Strendingur, Brunahönnun, Myrra hljóðstofa.
Mikill metnaður er til þess að vanda vel til verka við endurbætur Félagsheimilisins þannig að sómi verði að eins og þegar húsið var byggt á sínum tíma. Leiðarljósið í hönnun og efnisvali er að heildarútlitið verði mjög í takt við upprunalegt útlit og hefur m.a. verið unnið með upprunalegar teikningar, gamlar ljósmyndir og sagan skoðuð en húsnæðið mun hins vegar uppfylla nútímakröfur og öryggisstaðla. Salurinn verður áfram klæddur með sambærilegum viðarpanel og áður, huldir gluggar fá aftur að njóta sín, sviðið og barinn verða lagfærð auk þess sem hringljósin í salnum sem eru svo einkennandi fyrir útlit hans verða gerð upp og endurnýtt svo fátt eitt sem nefnt.
Endurbæturnar hófust á niðurrifi innanhúss en margt þurfti að fjarlægja sem ekki stóðst öryggiskröfur, var orðið ónýtt eða lúið t.d. var viðarklæðingin ekki eldvarin, salerni og lagnir á neðri hæðinni úr sér gengin o.s.frv. Þegar hefur verið lögð gríðarleg vinna margvíslegar í lagfæringar t.d. er búið að skipta um einangrun í húsinu, endurnýja vatnslagnakerfið að húsinu, loftræsikerfið lagfært og stýribúnaður þess endurnýjaður og lögð drög að endurnýjun allra raflagna sem eru barn síns tíma.
Hönnun fyrir raf-, og öryggiskerfi, lýsingu, vatnslagnir, útlitshönnun, hljóðvist o.fl liggja að mestu fyrir auk þess sem efnisval flestra verkþátta er langt komið. Næsta skref í ferlinu er vinna við samræmingu allra verkfræðilegra teikninga, hönnunar og aðaluppdrátta sem er forsenda þess að hægt verði að bjóða út þá verkþætti er snúa að enduruppbyggingunni. Fyrr er ekki hægt að halda áfram og ekki hægt að fara í formlegt útboð á verkinu nema að fjármagn í loka hluta enduruppbyggingarinnar sé tryggt en aðrar áskoranir sveitarfélagsins sbr. gríðarlega umfangsmiklar endurbætur á Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla vegna myglu urðu til þess að framkvæmdir við Félagsheimilið fóru óhjákvæmilega á bið.
Sem stendur er því óljóst hvenær hafist verður handa á ný við að klára endurbætur félagsheimilisins, hvenær framkvæmdir klárast og félagsheimilið opnar aftur. Vonandi mun hins vegar menningin blómstra og Seltirningar á öllum aldri njóta sín fyrr en síðar í endurbættu Félagsheimili sem við öll getum verið stolt af.
Hér má sjá myndir úr Félagsheimilinu frá mismunandi tímum en þær sýna vel hvernig það var á upphafsárunum og hvernig ástandið var orðið. Enn fremur má sjá myndir sem sýna stöðu mála í endurbótaferlinu sem og hvað framtíðin ber í skauti sér þegar Félagsheimilið opnar aftur eftir gagngera endurnýjun en þó í takt við upprunalega hönnun.