Fara í efni

Óskum tilboða í vinnu við útskiptingu lampa fyrir gatna- og stígalýsingu.

Útboðið varðar vinnu við útskiptingu 724 lampa í gatna- og stígalýsingarkerfi í eigu Seltjarnarnesbæjar. Skilafrestur tilboða er til kl. 10:00 fimmtudaginn 15. ágúst 2024.

ÚTBOÐ Seltjarnarnesbær óskar eftir tilboðum í : „Vinnu við útskiptingu lampa fyrir gatna- og stígalýsingu“ 170104

Útboðið varðar vinnu við útskiptingu 724 lampa í gatna- og stígalýsingarkerfi í eigu Seltjarnarnesbæjar. Seltjarnarnesbær er búinn að gera samning um kaup á lömpum sem verða afhentir í tveim hlutum, annars vegar september/október 2024 og hins vegar í maí/júní 2025 og skal allri uppsetningu vera lokið 31. desember 2025.

 

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, gudjon@liska.is frá og með 23. júlí 2024 og verður hægt að nálgast gögn til og með 7. ágúst 2024.

 

Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti til gudjon@liska.is. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

 

Skilafrestur tilboða er til kl. 10:00 fimmtudaginn 15. ágúst 2024

 

Opnun tilboða fer fram rafrænt að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Við opnun tilboða verða lesin upp nöfn tilboðsgjafa og heildartilboðsfjárhæðir.

 

Seltjarnarnesbær


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?