Fara í efni

Sumarstörf fyrir 18 ára+ Opið fyrir umsóknir

Ungmennum 18 ára og eldri stendur til boða að sækja um fjölbreytt sumarstörf hjá hinum ýmsu stofnunum bæjarins s.s. á leikskólunum, í þjónustumiðstöðinni, á bæjarskrifstofunni, í félagsþjónustu og skapandi sumarstörf.

Sumarstörf hjá Seltjarnarnesbæ sumarið 2025 fyrir 18 ára og eldri (fædd 2007 eða fyrr)

Allar nánari upplýsingar og starfslýsingar er að finna á heimasíðunni: 

STARFSLÝSINGAR SUMARSTARFA 18+

Um er að ræða fjölbreytt störf hjá stofnunum bæjarins sem ungmenni eru hvött til að sækja um og falla að áhugasviði þeirra.

Umsóknarfrestur sumarstarfa er almennt til 23. apríl 2025, þeir sem sækja um eftir það, frá og með 24. apríl fara á biðlista.

ATH! Umsóknarfrestur um Skapandi sumarstörf er til og með 6. apríl nk.

Sótt er um sumarstörfin á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.

Laun starfsmanna í sumarstörfum hjá Seltjarnarnesbæ eru samkvæmt kjarasamningum Sameykis.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?