Umsóknir fara fram í gegnum mínar síður og er umsóknarfrestur til 20. maí nk.
Búið er að opna fyrir umsóknir í Tónlistarskóla Seltjarnarness fyrir skólaárið 2024-2025 og er það gert í gegnum mínar síður.
Umsóknarfrestur er til 20. maí nk.
Aðeins hefur borið á því undanfarin ár að foreldrar sækja um fyrir sjálfan sig en ekki barnið og þá er umsóknin sjálfkrafa ógild. Við biðjum foreldra/forráðamenn um að gæta þess að nafn barns standi "EFST" á umsókninni. Athugið að ekki þarf að sækja um fyrir börn sem fara í 1. og 2. bekk á næsta skólaári þar sem þau innritast sjálfkrafa í forskóla tónlistarskólans.