Guðrún Björg Karlsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður félagsstarfs eldra fólks á Seltjarnarnesi.
Guðrún Björg var valin í starfið úr hópi fjögurra umsækjenda að loknu ítarlegu valferli. Guðrún Björg stundar nú nám í öldrunarþjónustu við Félagsvísindasvið HÍ, en hefur áður lokið BA gráðu í sálfræði og MA gráðu í náms- og starfsráðgjöf. Hún hefur starfað sem náms- og starfsráðgjafi í rúma tvo áratugi, en hefur einnig reynslu af félagsstarfi eldra fólks m.a. frá Grund og hjúkrunarheimilinu Mörk.
Guðrún Björg hefur þegar tekið til starfa, en hún tekur við hlutverkinu af Kristínu Hannesdóttur sem veitt hefur starfseminni forstöðu frá árinu 2011. Um leið og við bjóðum Guðrúnu Björgu velkomna til starfa, er Kristínu þakkað kærlega fyrir sitt framlag í þágu félagsstarfsins í gegnum árin.
Nú er unnið að gerð dagskrár félagsstarfsins fyrir vorönn 2025 og verður hún kynnt í lok desembermánaðar.