Auglýst er laus til umsóknar staða aðstoðarleikskólastjóra Leikskóla Seltjarnarness
Leikskóli Seltjarnarness er sameinuð fag- og rekstrareining með um 220 börnum. Í skólanum eru 12 deildir á þremur starfsstöðvum, Mánabrekku og Sólbrekku við Suðurströnd og Stjörnubrekku á Skólabraut 1. Einkunnarorð leikskólans eru jákvæðni, virðing og fagmennska. Í skólanum er lögð áhersla á að börn fái tækifæri til að hjálpa sér sjálf eftir því sem þroski þeirra og geta leyfir og þau styrkt til sjálfshjálpar í öllum þáttum daglegs lífs. Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins því samkvæmt hugmyndafræði leikskóla lærir barn mest og best í leik og samskiptum við börn og fullorðna í frjóu og skapandi umhverfi. Í leikskólanum er lögð sérstök áhersla á tónlist. Frekari upplýsingar um Leikskóla Seltjarnarness er að finna á heimasíðunni.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi.
- Reynsla á sviði stjórnunar á leikskólastigi æskileg.
- Viðbótarmenntun í stjórnun kostur.
- Kennslureynsla á leikskólastigi.
- Þekking og reynsla á rekstri leikskóla.
- Reynsla í starfsmannastjórnun.
- Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans.
- Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Umsókn um starfið skal fylgja leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og gögn sem staðfesta frekari menntun, ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.
Öllum umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar
Stefnt er á að ráða í stöðuna sem fyrst, en eigi síðar en f.o.m 1. ágúst 2025. Umsóknarfrestur er t.o.m. 22. apríl 2025.
Upplýsingar um starfið veitir Margrét Gísladóttir leikskólastjóri Leikskóla Setjarnarness, margret.gisladottir@seltjarnarnes.is