Leikskóli Seltjarnarness leitar að góðu fólki til að koma til liðs við starfsmanna- og nemendahópinn
Gildi Leikskólans eru jákvæðni, virðing og fagmennska. Þessi gildi hefur starfsmannahópurinn sameinast um að starfa eftir og eru þau höfð að leiðarljósi í öllu starfi skólans. Skólinn státar af metnaðarfullri starfsemi, ýmsum viðbótarkjörum, styttingu vinnuvikunnar og tilboði um námssamninga.
Allar upplýsingar um þau störf sem nú eru laus til umsóknar er að finna á ráðningavef Seltjarnarnesbæjar en þar eru m.a. tilgreind helstu verkefni og ábyrgð, mennturnar- og hæfniskröfur tengt hverju starfi fyrir sig. Umsóknarfrestur er til 30. október nk.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.