Fara í efni

Tilnefningar óskast um íþróttamann Seltjarnarness 2024

ÍTS óskar eftir ábendingum frá íbúum á Seltjarnarnesi fyrir 13. janúar 2025 um íþróttamann sem sýnt hefur framúrskarandi árangur í íþróttagrein sem fellur undir starfsemi Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.

Kjör íþróttamanns Seltjarnarness í kvenna og karlaflokki 2024 fer fram í samkomusal íþróttahúss á 2. hæð fimmtudaginn 30. janúar 2025 kl. 17:30.

Vegna kjörsins óskar ÍTS eftir tilnefningum frá íbúum á Seltjarnarnesi um íþróttamann sem sýnt hefur framúrskarandi árangur í íþróttagrein sem fellur undir starfsemi Íþrótta- og ólymíusambands Íslands. Með tilnefningunni þarf að fylgja ítarlegur rökstuðningur. Athugið að aðeins þeir sem eiga lögheimili á Seltjarnarnesi geta verið tilnefndir, óháð hvar íþróttin er stunduð. Nánar um reglur um kjör íþróttamanns Seltjarnarness

Styrkur úr Afreksmannasjóði

ÍTS óskar einnig eftir umsóknum um styrk úr Afreksmannasjóði íþróttamanna á Seltjarnarnesi. Með umsóknum skal leggja ítarlega greinagerð um umsækjandann. Nánar um úthlutun afreksmannastyrkja.

 

Tilnefningar til íþróttamanns Seltjarnarness 2024 og umsóknir úr afreksmannasjóði skal senda á netfangið haukur@seltjarnarnes.is fyrir 13. janúar nk.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?