Settir hafa verið upp gámar á Orkuplaninu við Austurströnd fyrir íbúa að losa umfram magn af pappa og plasti sem safnast upp við heimilin yfir hátíðirnar. Enn fremur er kominn gámur fyrir pappa við grenndarstöðina á Hagkaupsplaninu og svo er auðvitað minnt á Sorpu við Ánanaust.
Það er mikilvægt að öll umgengni um og við gámana verði til fyrirmyndar svo að hægt sé að þjónusta íbúa með þessum hætti. Í þá má eingöngu losa pappír/pappa og plast auk þess sem óheimilt er að skilja eftir rusl við gámana. Frekar að koma aftur seinna ef allt er fullt en mjög reglubundin losun verður á gámunum næstu daga.