Fara í efni

Fyrri hluta á útskiptum götuljósa lokið hratt og örugglega

Sýnileg áhrif lýsingar og velheppnuð vinna við útskipti á gömlu götuljósunum á Seltjarnarnesi fyrir nýja lampa með led-lýsingu. Áhrifarík drónamyndbönd í fréttinni sýna fyrir og eftir lýsingu.
Yfirlitsmynd sem sýnir þá 353 lampa sem búið er að skipta út fyrir LED lýsingu.
Yfirlitsmynd sem sýnir þá 353 lampa sem búið er að skipta út fyrir LED lýsingu.

Í nóvember hófst vinna við að skipta út gömlu kvikasilfursgötulömpum á Seltjarnarnesi fyrir lampa með led-lýsingu. Verkefnið var tvískipt þ.e. byrjað var á götuljósum í nágrenni við skólana og við göngustíga sem er um helmingur allra götu-/stígaljósa í bænum, alls 353 lampar og er þeim hluta nú lokið. Stefnt er að því að klára svo útskiptin í heild sinni á Seltjarnarnesi á næsta ári.

Led ljósin hafa marga kosti umfram gömlu ljósin, þau eyða minni orku, auðveldara er að stjórna hvert ljósið fer og þau endast betur og eru ódýrari í rekstri. Ráðgert er að orkusparnaðurinn við þessa 353 lampa sem þegar er búið að skipta út verði um 71% frá því sem verið hefur eða um 2,3 milljónir á ári m/vsk. Viðhaldskostnaður mun enn fremur lækka um 2,5 milljón á ári næstu árin en samið var við ON (Ljósvista) um viðhald. Til viðbótar er ráðgerður sérstakur orku- og viðhaldssparnaður upp á uþb 3 milljónir á ári vegna útskipta á svokölluðum Albertslund lömpum sem eru á velvöldum stöðum hér í bæ. 

Hér má sjá áhugaverð drónamyndbönd sem sýna lýsinguna fyrir og eftir útskipti á götuljósum á nokkrum stöðum. 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?