Óskað er eftir fólki til að sinna félagslegum innlitum í heimaþjónustu um kvöld og helgar. Umsóknarfrestur er til 4. september nk.
Fjölskyldusvið Seltjarnarnesbæjar leitar eftir fólki til að sinna félagslegum innlitum í heimaþjónustu á heimilum einstaklinga og í íbúðarkjarna á Skólabraut 3-5. Seltjarnarnesi um kvöld og helgar.
Starfssvið:
- Heimaþjónusta
- Innlit til íbúa, lyfjagjöf og ýmis aðstoð
Hæfniskröfur:
- Mjög æskilegt er að umsækjendur séu orðnir 20 ára (fædd 2003 eða fyrr)
- Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til sjálfstæðra vinnubragða og frumkvæði
- Tillitsemi, stundvísi, reglusemi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Bíll til afnota í starfi er nauðsyn.
Fríðindi í starfi:
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Afsláttur á korti í World Class
- Sundkort á Seltjarnarnesi
- Bókasafnskort
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagbjört Lind Orradóttir, dagbjort.l.orradottir@seltjarnarnes.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SNS og Eflingar stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 4. september 2023 og skal umsóknum skilað í gegnum ráðningarvef bæjarins.