Fara í efni

Áfram fundað hjá Ríkissáttasemjara vegna kennaraverkfallsins

Samninganefndir kennara og ríkis og sveitarfélaga funduðu í gær hjá ríkissáttasemjara, en undanfarna viku hafa aðilar fundað óformlega, bæði á formannafundum og í öðrum samtölum og minni fundum. Samningsaðilar munu halda áfram samtalinu hjá ríkissáttasemjara í dag.

Samninganefnd Sambandsins ítrekar samningsvilja sinn gagnvart leik- og grunnskólakennurum og vonast eftir uppbyggjandi og gagnlegum samtölum á næstu dögum við félögin fimm um þau málefni sem standa út af.

Frétt af vef Sambands íslenskra sveitarfélaga: https://www.samband.is/frettir/afram-fundad-hja-rikissattasemjara-i-dag


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?