Fara í efni

17. júní á Seltjarnarnesi hátíðardagskrá frá kl. 10-15

Skrúðganga og fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Frítt í alla skemmtun og leiktæki. Allir velkomnir á 17. júní! Fögnum saman 80 ára afmæli íslenska lýðveldisins 17. júní 1944 - 2024.

HÁTÍÐARDAGSKRÁ 17. JÚNÍ 2024

Kl. 10-12 Bátasigling frá smábátahöfninni
Siglingafélagið Sigurfari og Björgunarsveitin Ársæll bjóða börnum í fylgd með fullorðnum upp á bátsferðir frá smábátahöfninni við Bakkavör. Björgunarvesti fyrir alla. Siglingar eru háðar veðurfari.

Kl. 11.00 Hátíðarguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari og sr. Sigurvin Jónsson flytur hugleiðingu. Rótarýmenn taka þátt í messunni og bjóða upp á kaffiveitingar í þjóðhátíðarstíl eftir messu í safnaðarheimilinu.

Kl. 12.45 Skrúðganga frá Leikskóla Seltjarnarness yfir í Bakkagarð
Lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarness, trúðar, stultufólk og fánaberar í broddi fylkingar ásamt lögreglufylgd.

DAGSKRÁ Í BAKKAGARÐI HEFST KL. 13.00

  • Jónsi  hinn eini sanni stýrir stemningunni og skemmtir. 

  • Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar flytur hátíðarávarp.

  • Fjallkonan 2024 flytur ljóðið Hver á sér fegra föðurland eftir Huldu.

  • GDRN söngkonan geðþekka gleður gesti í garðinum.

  • Páll Óskar mætir í öllu sínu veldi með stuðið á sviðið.

  • Karíus og Baktus prakkarast og syngja með börnunum

LÝÐVELDISBOLLAKÖKUR Í BOÐI Í TILEFNI AF 80 ÁRA AFMÆLI ÍSLENSKA LÝÐVELDISINS.

 

LEIKTÆKI OG STEMNING FRÁ KL. 13-15 – FRÍTT Í ÖLL TÆKI Í BAKKAGARÐI

  • Lazertagvöllur
  • Rennibraut, þrautabraut og hoppukastali*
  • Vatnaboltar
  • Hestateymingar kl. 12.45 - 14.45
  • Andlitsmálning
  • Myndaspjöld
  • Kandífloss, blöðrur, fánar, þjóðhátíðarnammi, pylsur, popp, kaffi, gos og hvað eina!

Athugið!
Suðurströnd verður lokuð bílaumferð að hluta til, til kl. 16.30.
*Hoppukastalar eru háðir veðri og verða teknir niður ef of vindasamt eða blautt.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?