HÁTÍÐARDAGSKRÁ 17. JÚNÍ 2023
Kl. 10-12 Bátasigling frá smábátahöfninni
Siglingafélagið Sigurfari og Björgunarsveitin Ársæll bjóða börnum í fylgd með fullorðnum upp á bátsferðir frá smábátahöfninni við Bakkavör. Björgunarvesti fyrir alla. Siglingar eru háðar veðurfari.
Kl. 11.00 Hátíðarguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari. Rótarýmenn taka þátt í messunni og flytur Gunnar Guðmundsson forseti klúbbsins hugleiðingu. Boðið verður upp á kaffiveitingar í þjóðhátíðarstíl eftir messu í safnaðarheimilinu.
Kl. 12.45 Skrúðganga frá Leikskóla Seltjarnarness yfir í Bakkagarð
Lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarness, trúðar, stultufólk og fánaberar í broddi fylkingar ásamt lögreglufylgd.
DAGSKRÁ Í BAKKAGARÐI HEFST KL. 13.00
- Jóhann Örn Ólafsson betur þekktur sem Jói dans stýrir stemningunni
- Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar flytur hátíðarávarp
- Fjallkonan 2023 flytur ljóðið Sólin úti á Nesi eftir Auði Jónsdóttur
Þess má geta að ljóðið er sérstaklega samið af Auði fyrir fjallkonuna af þessu tilefni. - Íþróttaálfurinn og Solla stirða mæta hoppandi hress
- Júlí Heiðar og Kristmundur syngja sína vinsælustu smelli
- Sylvía Erla og Árni Beinteinn syngja og dansa með börnunum
- Hljómsveitin Karma Brigade stígur á stokk með kraftmikla sviðsframkomu og söng.
Karma Brigade er skipuð ungu fólki sem hefur spilað lengi saman og getið sér gott orð. Í hljómsveitinni er Seltirningurinn Jóhann Egill Jóhannsson en auk hans skipa sveitina Agla Bríet Bárudóttir, Steinunn Ólafsdóttir, Alexander Grybos og Hlynur Sævarsson.
LEIKTÆKI OG STEMNING FRÁ KL. 13-15 – FRÍTT Í ÖLL TÆKI Í BAKKAGARÐI
- Lazertagvöllur
- Rennibraut, þrautabraut og hoppukastali*
- Vatnaboltar
- Hestateymingar kl. 12.45 - 14.45
- Andlitsmálning
- Myndaspjöld
- Kandífloss, blöðrur, fánar, þjóðhátíðarnammi, pylsur, popp, kaffi, gos og hvað eina!
Athugið!
Suðurströnd verður lokuð bílaumferð að hluta til, til kl. 16.30.
*Hoppukastalar eru háðir veðri og verða teknir niður ef of vindasamt eða blautt.