263. fundur umhverfisnefndar Seltjarnarness haldinn miðvikudaginn 9. mars 2016 kl. 17:00 í fundarherbergi bæjarstjórnar að Austurströnd 2.
Mættir aðalmenn: Margrét Pálsdóttir, Elín Helga Guðmundsdóttir, Ragnhildur Ingólfsdóttir, Guðmundur Jón Helgason og Margrét Lind Ólafsdóttir. Gísli Hermannsson skrifaði fundargerð.
Mættir varamenn: Stefán Bergmann, Hannes Tryggvi Hafstein.
Áheyrnarfulltrúi Ungmennaráðs: Sólveig Björnsdóttir.
Fundur settur kl. 17:15
Fyrir var tekið:
-
Málsnúmer: 2011090001.
Vegvísar – Mannvit.
Hörður Bjarnason hjá verkfræðistofunni Mannvit kynnti nýuppfærða skýrslu vegna vegvísa á Seltjarnarnesi.
-
Golfklúbbur Ness.
Kristinn Ólafsson formaður Golfklúbbs Ness kynnti hugmyndir klúbbsins um formlegann samning um nýtingu núverandi golfsvæðis milli golfklúbbsins og bæjarins. Haukur Óskarsson framkvæmdastjóri golfklúbbsins mætti einnig á fundinn.
Stjórn golfklúbbsins bent á að senda erindi til bæjarráðs.
-
Málsnúmer: 2016030012.
Starfsemi og stækkun Urtagarðs í Nesi kynnt.
-
Erindi frá Yrkjusjóði.
Erindi vísað til bæjarráðs. -
Önnur mál.
Rætt um athugasemdir umhverfisnefndar við deiliskipulag vestursvæða.
Rætt um væntanlegann hreinsunardag, vöktun Gróttu, skrif í Nesfréttir og garðaskoðun. -
Fundi slitið :
Kl: 19:20