95. fundur hjá Veitustofnun Seltjarnarness haldinn fimmtudaginn 17. mars 2011 kl. 08:00 að Austurströnd 2.
Mættir: Ásgerður Halldórsdóttir, Guðmundur Jón Helgason, Sjöfn Þórðardóttir, Friðrik Friðriksson og Magnús Rúnar Dalberg.
Áheyrnarfulltrúi: Jens Andrésson boðaði forföll.
Aðrir sem sátu fundinn Stefán Eiríkur Stefánsson, forstöðumaður veitustofnana, Auður Daníelsdóttir aðalbókari. ÁH ritaði fundargerð.
Dagskrá:
-
Uppgjör ársins 2010
ÁH fór yfir niðurstöður uppgjörs veitnanna. AD sat fundinn undir þessum lið. -
Staða flutnings á stýrikerfi hitaveitunnar.
SES upplýsti að flutningur stýrikerfisins væri lokið.
SES upplýsti um heildarkostnað verkefnisins og dreifði kostnaðarsamantekt. - Skýrsla um vinnslueftirlit 2010-2011 lögð fram
SES lýsti ánægju sinni með niðurstöðu skýrslunnar. -
Önnur mál.
Ákveðið að boða á næsta fund endurskoðendur til að fara yfir uppgjör veitnanna. SES upplýsti um endurmat vátryggingarfjárhæðar fyrir Viðlagatryggingu Íslands. Rætt almennt um framtíðarsýn veitnanna. Ákveðið að ræða málið áfram á næsta fundi.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið kl. 09:00
Ásgerður Halldórsdóttir (sign.), Guðmundur Jón Helgason (sign.), Sjöfn Þórðardóttir (sign.), Friðrik Friðriksson (sign) og Magnús Rúnar Dalberg (sign).