165. fundur stjórnar Veitustofnana Seltjarnarness var haldinn í fundarsal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunni, þriðjudaginn 28. janúar 2025 kl. 08:00.
Mættir: Svana Helen Björnsdóttir, formaður veitustjórnar sem stýrði fundi, Guðmundur Jón Helgason, Garðar Gíslason, Bjarni Torfi Álfþórsson og Þór Sigurgeirsson. Fjármálastjóri Seltjarnarnesbæjar, Svava G. Sverrisdóttir, sat fundinn undir 1. dagskrárlið.
Fundarritari: Arnar Óli Einarsson, veitustjóri.
Dagskrá:
1. 2024060090- Fjárhagsáætlun 2025
Farið yfir fjárhagsstöðu veitustofnana 2025.
Afgreiðsla: Svava kynnti útkomuspá 2024 og fjárhagsstöðu. Fjárhagsáætlun veitna 2025 rædd.
2. 2024110158-Framkvæmdir veitustofnana 2025
Áætlaðar framkvæmdir í hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu 2025 kynntar.
Afgreiðsla: Helstu framkvæmdir hitaveitu, fráveitu og vatnsveitu kynntar fyrir stjórn.
3. 2024110158-Hæðarbraut fyrsti leggur
Farið yfir verkefnið að skipta út upprunalegum hitavatnslögnum í stokki í Hæðarbraut, milli Valhúsabrautar og Melabrautar.
Afgreiðsla: Farið yfir kostnað, verklag og helstu öryggisþætti í þessari framkvæmd. Stefnt að því að framkvæmdir hefjist í apríl 2025.
Fundi slitið kl. 09:38.