Vinnufundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 21. september 2016, kl. 8:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness.
Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Karl Pétur Jónsson, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Magnús Örn Guðmundsson, Sigurþóra Bergsdóttir og Baldur Pálsson, fræðslustjóri.
Fræðslustjóri upplýsti fulltrúa nefndarinnar um stöðu kjarasamninga starfshópa á fræðslusviði og gerði grein fyrir vinnu við mótun Frístundamiðstöðvar Seltjarnarness, sem er eftirfylgni við tillögur frá Capacent um fyrirkomulag þjónustu Seltjarnarnesbæjar við börn og unglinga.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl. 9:20.