245. (68) fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 18. janúar 2012, kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness.
Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Björg Fenger, Davíð Scheving, Halldór Árnason, Sigurþóra Bergsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, Sigríður Elsa Oddsdóttir fulltrúi starfsfólks v. Leikskóla Seltjarnarness, Hildigunnur Magnúsdóttir, fulltrúi foreldra v. Leikskóla Seltjarnarness, Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, Þórunn Halldóra Matthíasdóttir, fulltrúi kennara v. Grunnskóla Seltjarnarness, Sigurlína Margrét Magnúsdóttir, fulltrúi foreldra v. Grunnskóla Seltjarnarness og Baldur Pálsson, fræðslustjóri.
Forföll: Hildigunnur Gunnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
Fundi stýrði Sigrún Edda Jónsdóttir
Fundargerð ritaði Baldur Pálsson
Þetta gerðist:
- Skólavogin. Samningur Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólapúlsins ehf. -málsnúmer. 2012010034
Skólanefnd samþykkir þátttöku Seltjarnarnesbæjar í Skólavoginni.
Soffía Guðmundsdóttir, Sigríður Elsa Oddsdóttir og Hildigunnur Magnúsdóttir komu til fundar kl. 8:15. - Vinnustaðagreining -kynning á niðurstöðum fyrir stofnanir á fræðslusviði.
Fræðslustjóri kynnti niðurstöður vinnustaðagreiningar fyrir stofnanir á Fræðslusviði.
Sigurlína Margrét Magnúsdóttir vék af fundi kl 8:30. Guðlaug Sturlaugsdóttir og Þórunn Halldóra Matthíasdóttir viku af fundi kl. 8:40. - Ályktun stjórnar Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla – minna á að undirbúningstímar kennara í leikskólum er kjarasamningsbundinn réttur -málsnúmer. 2011120045
Lagt fram til kynningar. - Ályktun stjórnar Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla – áskorun um fjárhagslegt svigrúm til innleiðingar á aðalnámskrá leikskóla. -málsnúmer. 2011120044
Lagt fram til kynningar. - Ályktun stjórnar Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla – hávaði á hættumörkum í leikskólum. -málsnúmer. 2011120043
Skólanefnd felur fræðslustjóra að fylgja málinu eftir með úttekt á hljóðvist í Leikskóla Seltjarnarness og Skólaskjóli Grunnskóla Seltjarnarness. - Leikur og nám í leikskólum. Samstarfssamningur RannUng - Kraginn -málsnúmer. 2012010035
Skólanefnd samþykkir þátttöku Seltjarnarnesbæjar í samstarfinu.
Soffía Guðmundsdóttir, Sigríður Elsa Oddsdóttir og Hildigunnur Magnúsdóttir viku af fundi kl. 8:55. - Sumarlokun Leikskóla Seltjarnarness 2011. Skólanefnd samþykkir sumarlokun Leikskóla Seltjarnarness ffrá og með. 4. júlí til og með 31. júlí.
- Könnun á viðhorfum foreldra barna hjá dagforeldrum á Seltjarnarnesi.
Fræðslustjóri kynnti fyrirhugaða viðhorfskönnun.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl. 9:00.
Sigrún Edda Jónsdóttir (sign)
Björg Fenger (sign)
Davíð Birgisson Scheving (sign)
Halldór Árnason (sign)
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (sign)