FUNDARGERÐ SKÓLANEFNDAR |
|
Efni fundarins: 1. Starfsáætlun skólanefndar. |
Framkvæmdaraðili: Skólanefnd |
Fundur nr. : |
1 |
||
Fundarstjóri: Bjarni Torfi Álfþórsson |
Fundarritari: Óskar J. Sandholt |
|||
Staður: Skólaskrifstofa |
||||
Þátttakendur: Skólanefnd: Bjarni Torfi Álfþórsson, Gunnar Lúðvíksson, Lárus B. Lárusson, Sunneva Hafsteinsdóttir og Árni Einarsson. Skólaskrifstofa: Lúðvík Hjalti Jónsson og Óskar J. Sandholt. |
Dagsetning : |
03.07.2002 |
||
Frá kl. : |
17:00 |
|||
Til kl. : |
18:40 |
|||
Næsti fundur: |
21.08.2002 |
|||
Tími : |
8:30 |
|||
Staður: |
Grunnskólar |
|||
Umræður, ákvarðanir, niðurstöður: |
Ábyrgur: |
Verklok: |
1. Starfsáætlun skólanefndar: |
|
|
2. Sérkennslumál: |
|
|
3. Matarmál Mýrarhúsaskóla: |
BTÁ |
|
4. Önnur mál: a. Lögð fram skýrsla um áhættugreiningu fyrir höfuðborgarsvæðið (fylgiskjal 1-3). Samþykkt að senda skýrsluna til stjórnenda í skólastofnunum bæjarins. Óskað verður eftir viðbrögðum þeirra á næstu fundum skólanefndar. b. Rætt um öryggi í skólum og á skólalóðum (fylgiskjal 1-4). Samþykkt að skólaskrifstofa láti gera úttekt á öryggisþáttum lóða og skólastofnana bæjarins. c. Rætt um að fjölga gangbrautarvörðum milli kl. 8:00 og 8:20 næsta vetur þar sem allir nemendur Mýrarhúsaskóla byrja á sama tíma. Samþykkt að beina því til stjórnenda Mýrarhúsaskóla að þeir sjái til þess að það verði gert. d. LBL lagði til að útbúið verði snúningstorg til bráðabirgða, aftan við Ísbjarnarhúsið. Samþykkt að senda tillögu til skipulags- og mannvirkjanefndar varðandi umferðarmál við skólastofnanir. e. Lagt fram bréf leikskólafulltrúa, dags. 03.07.2002 (fylgiskjal 1-5), um laun í staðbundnu námi leikskólakennara við KHÍ. Samþykkt samhljóða. f. Rætt um kaup á neðri hæð Skólabrautar 1. Skólanefnd lýsir stuðningi við þau áform bæjarstjórnar að festa kaup á húsnæðinu. g. Rætt um stöðu nýbyggingar við Valhúsaskóla. SH lýsti undrun sinni á hve framkvæmdir og innkaup húsbúnaðar og tækja ganga seint. h. Skólanefndarmönnum afhentur geisladiskur (fylgiskjal 1-6) með helstu upplýsingum er þeir kunna að þarfnast varðandi reglugerðir, samþykktir og annað er snýr að skólamálum. Skólanefnd fagnar framtakinu. |
ÓJS
ÓJS
LBL |
|
Bjarni Torfi Álfþórsson (sign.)
Gunnar Lúðvíksson (sign.)
Lárus B. Lárusson (sign.)
Sunneva Hafsteinsdóttir (sign.)
Árni Einarsson (sign.)