339. fundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 26. mars 2025, kl. 08:15 í sal bæjarstjórnar Seltjarnarness.
Fundinn sátu: Dagbjört S. Oddsdóttir (formaður), Grétar Dór Sigurðsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Karen María Jónsdóttir, Sigurþóra Bergsdóttir
Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.
Gestir: Margrét Gísladóttir leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness, Jóhanna Margrét Gísladóttir, fulltrúi foreldraráðs Leikskóla Seltjarnarness, Kristjana Hrafnsdóttir, fulltrúi skólastjóra grunnskóla á Seltjarnarnesi, Helga Kristín Gunnarsdóttir, fulltrúi kennara grunnskóla á Seltjarnarnesi, Skúli Eiríksson, fulltrúi foreldra grunnskóla á Seltjarnarnesi, Hildigunnur Gunnarsdóttir, varabæjarfulltrúi og Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.
1. 2025010313 - Inntaka barna í leikskóla á Seltjarnarnesi skólaárið 2025-2026.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir horfum varðandi inntöku barna í leikskóla á Seltjarnarnesi haustið 2025.
2. 2025010214 - Leikskóladagatal Leikskóla Seltjarnarness skólaárið 2025-2026.
Skólanefnd staðfestir skóladagatal Leikskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
3. 2025010215 - Leikskóladagatal Ungbarnaleikskóla Seltjarnarness skólaárið 2025-2026.
Skólanefnd staðfestir skóladagatal Ungbarnaleikskóla Seltjarnarness fyrir skólaárið 2025-2026.
Margrét Gísladóttir og Jóhanna Margrét Gísladóttir viku af fundi og Kristjana Hrafnsdóttir, Helga Kristín Gunnarsdóttir og Skúli Eiríksson kl. 09:02.
4. 2025020108 - Úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
Skólanefnd samþykkir tillögu að úthlutun til Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2025-2026 með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. Skólanefnd beinir því jafnframt til sviðsstjóra að áhrif hagræðingar á innra starf skólans verði könnuð.
5. 2025020109 - Úthlutun til Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2025-2026.
Skólanefnd samþykkir tillögu að úthlutun til Valhúsaskóla fyrir skólaárið 2025-2026 með fyrirvara um samþykki bæjarráðs. Skólanefnd beinir því jafnframt til sviðsstjóra að áhrif hagræðingar á innra starf skólans verði könnuð.
Grétar Dór Sigurðsson vék af fundi kl. 09:35.
6. 2025030108 - Íslenska æskulýðsrannsóknin 2024.
Frestað til næsta fundar.
Hildigunnur Gunnarsdóttir kom til fundar kl. 9:43.
7. 2019010209 - Endurskoðun skólastefnu Seltjarnarnesbæjar.
Hildigunnur Gunnarsdóttir gerði grein fyrir stöðu verkefnisins og næstu skrefum.
Karen María Jónsdóttir vék af fundi kl. 9:57 og Helga Kristín Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 10:02.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl. 10:09.