Vinnufundur skólanefndar var haldinn miðvikudaginn 23. maí 2018, kl. 8:00 í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarness.
Mættir voru: Sigrún Edda Jónsdóttir, Magnús Örn Guðmundsson, Karl Pétur Jónsson, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Sigurþóra Bergsdóttir og Baldur Pálsson, fræðslustjóri.
Fræðslustjóri gerði grein fyrir inntöku barna í Leikskóla Seltjarnarness haustið 2018 og fór yfir hvernig fjölgun leikskólabarna verður mætt m.t.t. húsnæðis, mönnunar og þjónustu við nýjar leikskóladeidir.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum.
Fundi slitið kl. 8:50