28. fundur Skipulags- og umferðanefndar, þriðjudaginn 2. júní, 2015, kl. 8:00 að Austurströnd 2 á Seltjarnarnesi.
Mættir: Bjarni Torfi Álfþórsson, Anna Margrét Hauksdóttir, Ásgeir Guðmundur Bjarnason, Ragnhildur Ingólfsdóttir. Stefán Bergmann, Gísli Hermannsson sviðsstjóri Umhverfissviðs, Þórður Ólafur Búason, skipulags- og byggingafulltrúi.
Fundarstjóri: Bjarni Torfi Álfþórsson, fundarritari: Þórður Ólafur Búason
Skipulagsmál samkvæmt Skipulagslögum nr. 123/2010
- Mál.nr. 2014060035
Heiti máls: Aðalskipulag Seltjarnarness 2015-2033.
Lýsing: Unnið með aðalskipulagstillögu ásamt ALTA aðalskipulags ráðgjafa. Árni Geirsson kemur til fundar.
Afgreiðsla: .Farið yfir aðalskipulagsgreinargerð kafla um inngangur, stefnumótun og upphaf kafla um landnotun.
- Mál.nr. 2013060016
Heiti máls: Deiliskipulag Vestur svæðis, tillaga
Lýsing: Unnið með deiliskipulagstillögu um svæði vestan Lindarbrautar ásamt Hornsteinum deiliskipulagsráðgjafa, Ögmundur Skarphéðinsson og Ragnhildur Skarphéðinsdóttir komu til fundar .
Afgreiðsla: Drög að skipulagstillögu kynnt.
Önnur mál
Fundargerð lesin og samþykkt. Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl.10:00.
Bjarni Torfi Álfþórsson sign, Anna Margrét Hauksdóttir sign, Ásgeir Guðmundur Bjarnason, Ragnhildur Ingólfsdóttir sign, Stefán Bergmann sign, Gísli Hermannsson sign, Þórður Ólafur Búason sign.