68. fundur Skipulags- og umferðanefndar, föstudaginn 15. desember 2017, kl. 08.00 að Austurströnd 2 á Seltjarnarnesi.
Fundinn sátu: Bjarni Torfi Álfþórsson, Anna Margrét Hauksdóttir, Stefán Bergmann, Ragnhildur Ingólfsdóttir, Axel Þórir Friðriksson. Áheyrnarfulltrúi ungmannaráðs boðaði forföll.
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson, byggingarfulltrúi.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
Skipulagsmál samkvæmt Skipulagslögum nr. 123/2010
- Mál.nr. 2017100116
Heiti máls: Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, efnisvinnslusvæði í Álfsnesvík
Lýsing: Lögð fram verklýsing vegna breytingu á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags fyrir efnisvinnslusvæði í Álfsnesvík
Afgreiðsla: Afgreiðslu frestað. Málið er enn í ferli. - Mál.nr. 2015110030
Heiti máls: Deiliskipulag Bollagarða og Hofgarða
Lýsing: Niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála.
Afgreiðsla: Úrskurðarorð umhverfis- og auðlinarmála lögð fram til kynningar.
Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu að hluta á ákvörðun Seltjarnarnessbæjar um samþykkt deiliskipulags Bollagarða og Hofgarða. Kröfu kærenda um að úrskurðarnefndin hlutist til um úrbætur á lóðamörkum Bollagarða 1-41 og Bollagarða 43-63 er vísað frá.
Byggingamál samkvæmt Mannvirkjalögum nr. 160/2010 - Mál nr. 2017090131, Tjarnarstígur 3
Heiti máls: Ósk um hækkun á þaki í samræmi við skipulag.
Lýsing: Nýjar teikningar – ósk um hækkun á þaki til samræmi við deiliskipulag. Afgreiðsla: Málið afgreitt á síðasta fundi – fyrirspurn frá lögmanni lögð fram til kynningar. Nefndin ítrekar að breytingar á þaki verði í samræmi við samþykktar teikningar og að ráðist verði í framkvæmdir á T5 hið fyrsta. - Mál nr. 2017110135, Hamarsgata 6 – 8
Heiti máls: Fyrirspurn um sameiningu lóða og breyttan byggingarreit
Lýsing: Sjá teikningu
Afgreiðsla: Skipulagsnefnd tekur jákvætt í fyrirspurnina að því gefnu að bæjarráð samþykki sameiningu lóða nr. 6 og 8.. - Mál nr. 2017110201, Kirkjubraut 1.
Heiti máls: Fyrirspurn um fastanúmer, fjölgun íbúða, skiptingu bílskúrs.
Lýsing: Sjá fyrirspurn og lýsingu.
Afgreiðsla: Óskað er eftir frekari gögnum svo sem teikningum. - Mál nr. 2017100016, Lindarbraut 27
Heiti máls: Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi.
Lýsing: Sjá fyrirspurn og lýsingu.
Afgreiðsla: Fagnefnd vísar málinu til skipulagshönnuða hverfisins til umsagnar. - Lagt fram til kynningar gróðurkort af Valhúsarhæð sem er í vinnslu á vegum umhverfisnefndar.
Fundarlok kl. 9.29
Sigurður Valur Ásbjarnarson