Dags.: 05.06.2003
Tími: 17:10-19:00
Staður: Bæjarskrifstofur
Fundarstjóri: Sólveig Pálsdóttir formaður
Fundarritari: Pálína Magnúsdóttir
Fundarmenn: Sólveig Pálsdóttir, Bjarki Harðarson, Bjarni Dagur Jónsson, Arnþór Helgason, Jakob Þór Einarsson og Pálína Magnúsdóttir bæjarbókavörður.
Dagskrá:
1. Drög að erindisbréfi fyrir menningarnefnd Seltjarnarness
2. Staða mála:
a) Bjartar nætur á Seltjarnarnesi
b) Flutningur bókasafns
c) Jónsmessuganga
1. Drög að erindisbréfi fyrir menningarnefnd Seltjarnarness
M.nr. 2003060003
Arnþór Helgason gerði eina athugasemd við erindisbréfið. Þar sem sagt er: "... með a.m.k. þriggja daga fyrirvara." Verði: "... með a.m.k. þriggja daga fyrirvara og skal dagskrá fylgja fundarboði."
Samþykkt einróma.
2. a) Bjartar nætur á Seltjarnarnesi
Sólveig fór yfir dagskrá hátíðarinnar og fór yfir ýmis mál varðandi hana
b) Flutningur bókasafns
Pálína greindi frá gangi verksins. Safnið verður opnað 17. júní.
c) Jónsmessuganga 23. júní.
Sólveig kynnti dagskrá kvöldsins.
Fundi slitið kl. 18:20.
Sólveig Pálsdóttir (sign)
Bjarki Harðarson (sign)
Bjarni Dagur Jónsson (sign)
Arnþór Helgason (sign)
Jakob Þór Einarsson (sign)