Dags.: 02.10.2003
Tími: 17:10-19:00
Staður: Bæjarskrifstofur
Fundarstjóri: Sólveig Pálsdóttir formaður
Fundarritari: Pálína Magnúsdóttir
Fundarmenn: Sólveig Pálsdóttir, Bjarki Harðarson, Bjarni Dagur Jónsson, Arnþór Helgason, Jakob Þór Einarsson og Pálína Magnúsdóttir bæjarbókavörður.
Dagskrá:
1. Drög að reglum um styrkveitingar
2. Listaverkakaup – stefnumótun
3. Höggmynd á steinum nálægt Gróttu
4. Umsókn um styrk vegna útgáfu kynningarrits/katalógs með eigin efni
5. Skýrsla: Alta ehf: Forsendur - greinargerð
1. Drög að reglum um styrkveitingar
mnr. 2003090095
Lögð fram drög að reglum um styrkveitingar.
Fram komu tillögur að breytingum á drögunum sem voru ræddar.
Reglurnar voru síðan bornar undir atkvæði með áorðnum breytingum og samþykktar samhljóða.
2. Listaverkakaup – stefnumótun
mnr. 2003090096
Formaður kynnti hugleiðingar og skoðanir sínar á stefnumótun um listaverkakaup.
Nefndarmenn tók heilshugar undir orð formannsins að móta þurfi stefnu í kaupum á listaverkum.
Nú þegar er Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur að gera úttekt á verkum í eigu bæjarins en einnig mun Auður Ólafsdóttir listfræðingur verða með í ráðum.
Formaður tók að sér að koma með drög að stefnumótun út frá núverandi listaverkasafni og hugmyndum sem fram komu á fundinum1 og leggja fyrir nefndarmenn.
3. Höggmynd á steinum nálægt Gróttu
mnr. 2003090018
Listamaðurinn Hubert Krzysztof Dobrzaniecki býður höggmynd til sölu sem setja skal upp nálægt Gróttu.
Boðinu er hafnað.
4. Umsókn um styrk vegna útgáfu kynningarrits/katalógs með eigin efni
mnr. 2003090003
Guðrún Einarsdóttir myndlistarmaður fer fram á styrk vegna útgáfu kynningarits, kr. 300.000.
Styrkbeiðninni hafnað.
5. Skýrsla: Alta ehf: Forsendur - greinargerð
mnr. 2003080006
Lögð fram skýrsla Alta ehf, forsendur – greinargerð til kynningar og upplýsingar fyrir nefndina.
Fundi slitið kl. 19:00
Sólveig Pálsdóttir (sign)
Bjarki Harðarson (sign)
Bjarni Dagur Jónsson (sign)
Arnþór Helgason (sign)
Jakob Þór Einarsson (sign)