472. fundur Fjölskyldunefndar var haldinn þriðjudaginn 23. apríl 2024, kl. 08:15 í fundarsal bæjarskrifstofa Seltjarnarnesbæjar.
Fundinn sátu: Hildigunnur Gunnarsdóttir (formaður), Dagbjört S. Oddsdóttir, Hákon Jónsson, Sigurþóra Bergsdóttir og Björg Þorsteinsdóttir.
Fundarritari: Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs og starfsmaður nefndar.
Gestir: Ása Kristín Einarsdóttir verkefnastjóri forvarna- og frísundastarfs tók þátt í fundinum.
Dagskrá:
1. 2022080045 - Forvarnarstarf og endurgerð forvarnarstefnu Seltjarnarnesbæjar.
Fjölskyldunefnd samþykkir tillögu að Forvarna- og lýðheilsustefnu Seltjarnarnesbæjar og vísar til bæjarráðs til staðfestingar.
Fundi slitið kl. 08:50.