398. fundur Fjárhags- og launanefndar Seltjarnarness var haldinn þriðjudaginn 10. júní 2008 kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar, Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.
Mættir voru: Ásgerður Halldórsdóttir, Stefán Pétursson, Guðrún Helga Brynleifsdóttir, Jónmundur Guðmarsson og Lúðvík Hjalti Jónsson, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
- Lagðar voru fram forsendur og rammi fyrir fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2009.
Samþykkt og vísað til vinnslu fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2009.
(Málsnúmer : 2008060020)
- Lagt fram minnisblað um horfur í rekstri Strætó bs.
(Málsnúmer: 2008060001)
- Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 06.06.2008 vegna nýs starfs vefstjóra Seltjarnarnesbæjar.
Vísað til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009.
Óskað er eftir þróun starfsmannafjölda og stöðugilda bæjarins síðustu ár.
(Málsnúmer: 2008060021)
- Lögð fram drög að þjónustusamningi milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um rekstur og framkvæmdir á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins.
Samþykkt samhljóða með fyrirvara um samþykki annarra sveitarfélaga sem hlut eiga að máli.
(Málsnúmer : 2008060022)
- Lögð fram fundargerð 7. fundar samráðsnefndar Seltjarnarnesbæjar og Starfsmannafélags Seltjarnarnesbæjar, dags. 30. maí 2008.
(Málsnúmer : 2006100068)
- Lagt fram bréf SÁÁ dags. 30.05.2008 með beiðni um styrk.
Samþykkt 30.000 kr. Styrkur.
(Málsnúmer : 2008060002 )
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:35
Ásgerður Halldórsdóttir (sign) Guðrún Helga Brynleifsdóttir (sign)
Stefán Pétursson (sign) Jónmundur Guðmarsson (sign)