972. Bæjarstjórnarfundur var haldinn miðvikudaginn 11. október 2023, kl. 17:00 þegar að bæjarstjórn Seltjarnarness kom saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2.
Fundinn sátu: Þór Sigurgeirsson (ÞS), Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir (DSO), Guðmundur Ari Sigurjónsson (GAS), Karen María Jónsdóttir (KMJ) og Björg Þorsteinsdóttir (BÞ).
Fundargerð ritaði: Svava G. Sverrisdóttir.
Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.
Ragnhildur Jónsdóttir setti fund og stjórnaði.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
1. Fundargerð 149. fundar Bæjarráðs.
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.
Til máls tóku: GAS, ÞS.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerðina sem er í 4 liðum í heild sinni.
2. Fundargerð 564. fundar stjórnar SSH.
Fundargerðin lögð fram.
3. Fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók: KMJ.
4. Fundargerð 17. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness
Fundargerðin lögð fram.
Fundi slitið kl. 17:16