Miðvikudaginn 23. ágúst 2017 kl. 17:00 kom bæjarstjórn Seltjarnarness saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.
Mættir voru: Ásgerður Halldórsdóttir (ÁH), Bjarni Torfi Álfþórsson (BTÁ), Sigrún Edda Jónsdóttir (SEJ), Guðmundur Ari Sigurjónsson (GAS), Margrét Lind Ólafsdóttir (MLÓ) og Árni Einarsson (ÁE).
Gunnar Lúðvíksson ritaði fundargerð í tölvu.
Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.
Forseti bæjarstjórnar, Bjarni Torfi Álfþórsson setti fund og stjórnaði.
Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:
-
Fundargerð 279. fundar Umhverfisnefndar.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku: BTÁ, MLÓ, ÁE, GAS, SEJ, ÁH
-
Fundargerð 6. fundar Öldungaráðs Seltjarnarnesbæjar.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku: ÁE
-
Fundargerð 31. fundar Heilbrigðisnefndar Kjósarsvæðis.
Fundargerðin lögð fram.
-
Fundargerðir 268. fundar stjórnar Strætó bs.
Fundargerðin lögð fram.
-
Fundargerð 77. fundar svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins.
Fundargerðin lögð fram.
-
Fundargerð 377. fundar stjórnar SORPU bs.
Fundargerðin lögð fram.
-
Fundargerðir 444. og 446. fundar stjórnar SSH.
Fundargerðirnar lagðar fram.
Til máls tóku: ÁE, ÁH
-
Fundargerð 851. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fundargerðin lögð fram.
Fundi var slitið kl.: 17:17