Á Seltjarnarnesi búa ríflega 4700 íbúar og hjá Seltjarnarnesbæ starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum. Áhersla er lögð á að veita íbúum framúrskarandi þjónustu og starfsfólki gott vinnuumhverfi.
Öll laus störf á vegum Seltjarnarnesbæjar eru auglýst á ráðningavef bæjarins þar sem ennfremur skal sækja um viðkomandi störf. Lögð er áhersla á að viðhafa vandaða stjórnsýsluhætti við ráðningar þannig að ráða megi þann hæfasta hverju sinni. Ráðning skal byggja á kröfu um menntun, reynslu, færni og hæfni í mannlegum samskiptum. Ennfremur er lögð er áhersla á skýrt og greinargott ráðningaferli þar sem réttmætis og áreiðanleika er gætt.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um störf í boði. Öllum umsóknum er svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Seltjarnarnesbæjar og viðkomandi stéttarfélags. Jafnlaunavottun er í gildi hjá Seltjarnarnesbæ.
Starfsfólk
Leita má að upplýsingum starfsfólk Seltjarnarnesbæjar s.s. eftir nöfnum og starfsheiti í öllum deildum eða í ákveðinni deild.
Laus störf
Ráðningavefur Seltjarnarnesbæjar geymir allar upplysingar um þau störf sem auglýst eru laus hverju sinni hjá Seltjarnarnesbæ.
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Niðurgreiðsla á hollum og góðum mat í hádeginu
- Afsláttur á korti í World Class
- Sundkort á Seltjarnarnesi
- Bókasafnskort
Vinnuskólinn 14-17 ára
Vinnuskóli Seltjarnarnesbæjar býður 14 til 17 ára íbúum Seltjarnarness vinnu í sex vikur frá byrjun júní til júlíloka.
Sumarstörf 18 ára og eldri
Fjölbreytt sumarstörf hjá Seltjarnarnesbæ eru í boði fyrir ungmenni 18 ára og eldri á hverju sumri. Ungmenni á Seltjarnarnesi eru hvött til að sækja um út frá áhugasviði en starfslýsingar og aðrar praktískar upplýsingar varðandi umsóknir o.fl. Umsóknarfrestur fyrir árið 2023 er til 13. mars og sótt er um á ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.