Fara í efni

FJÖRUFERÐ Í GRÓTTU MEÐ HÍ OG FÍ kl. 12-14

Spennandi fjöruferð með Háskóla Íslands og Ferðafélagi Íslands (Ferðafélagi barnanna).

Spennandi fjöruferð með Háskóla Íslands og Ferðafélagi Íslands (Ferðafélagi barnanna).

 

Við skoðum ýmsar lífverur fjörunnar, grúskum í þanginu og leitum að kröbbum og öðrum smádýrum, greinum þörunga og fleira í skemmtilegri fjöruferð í Gróttu, þar sem er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf. Jóhann Óli Hilmarsson, landsþekktur fuglavísindamaður leiðir gönguna með nemendum í líffræði við HÍ. Það verður því líka hægt að beina sjónum að fuglum fjörunnar.

 

Gott er að mæta vel klædd, í stígvélum og með fötur eða glær ílát til að safna hinum ýmsu lífverum. Ekki verra að mæta með stækkunargler. Ekki gleyma nesti.

 

Hluti af verðlaunaverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?