Fara í efni

Seltirningar í góðum málum

Seltirningar eru í góðum málum þegar afbrot eru annars vegar því brot þar eru færri en víðast hvar annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.

Seltirningar eru í góðum málum þegar afbrot eru annars vegar því brot þar eru færri en víðast hvar annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta eru svosem engin ný tíðindi og komu því fundarmönnum ekki óvart þegar farið var yfir þróun brota á Seltjarnarnesi undanfarin ár. Árlega er haldinn slíkur fundur með lögreglunni og lykilfólki í sveitarfélaginu en fundurinn var einmitt haldinn í gær. Hann var mjög vel sóttur en fundarmenn voru rúmlega þrjátíu talsins en fundað var í húsakynnum bæjarstjórnar á Austurströnd 2.

Frá fundi um þróun brota á Seltjarnarnesi undanfarin árÓmar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og stöðvarstjóri lögreglustöðvar 5, hafði orðið í upphafi en hann fór yfir helstu breytingar sem hafa átt sér stað hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári. Hann notaði jafnframt tækifærið og óskaði eftir áframhaldandi góðu samstarfi við fulltrúa sveitarfélagsins sem og íbúa alla á Seltjarnarnesi.

Þessu næst fór Hákon B. Sigurjónsson lögreglufulltrúi yfir tölfræðina en þegar rýnt er í hana kemur m.a. í ljós að innbrot á Seltjarnarnesi voru mun færri árið 2008 en árin á undan. Sama á við þegar ofbeldisbrot og eignaspjöll eru skoðuð en þeim fækkaði á tímabilinu, þ.e. árið 2008 í samanburði við meðaltal áranna 2006-2007. Sé litið til þessa árs hefur innbrotum á Seltjarnarnesi ekki fækkað miðað við fyrstu níu mánuðina í fyrra en sama gildir reyndar líka fyrir aðra staði á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan býst þó fastlega við að innbrotum fækki núna á síðasta ársfjórðungi enda hafa nokkrir stórtækir innbrotsþjófar verið handteknir. Á fundinum var einnig farið yfir umferðarmál en það gerði Jóhann Karl Þórisson aðalvarðstjóri. Í þeim málum er almennt gott ástand á Seltjarnarnesi. Tölfræðina í heild sinni má annars nálgast með því að smella hér.


Tafla um afbrot

Af fundi um þróun brota á Seltjarnarnesi undanfarin ár

Ekki var annað að sjá og heyra en fundarmenn væru almennt nokkuð sáttir með gang mála á Seltjarnarnesi. Samkvæmt könnun um reynslu íbúa á höfuðborgarsvæðinu af lögreglu, öryggi og afbrotum er það líka raunin. Þannig eru t.d. næstum 90% íbúa á Seltjarnarnesi þeirrar skoðunar að lögreglan skili almennt góðu starfi þegar kemur að því að stemma stigu við afbrotum í bænum. Enn fleiri Seltirningar, eða 95%, telja sig örugga þegar þeir eru einir á ferð í byggðarlaginu eftir að myrkur er skollið á. Þetta og margt fleira kom fram í áðurnefndri könnun en það var Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn sem kynnti þessar niðurstöður sem er hægt að skoða betur í fréttinni hér að neðan.

Af fundi um þróun brota á Seltjarnarnesi undanfarin árEins og fyrr segir var fundurinn mjög vel sóttur og áhugi fundarmanna mikill. Eins og oft áður voru umferðarmálin nokkuð til umræðu og einnig sú staðreynd að lögreglustöð er ekki lengur starfrækt í bænum. Til stendur að opna nýja stöð á svæði lögreglustöðvar 5 en staðsetning hennar hefur ekki verið ákveðin. Lokaorðin átti Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri en hún þakkaði lögreglunni fyrir komuna og lýsti yfir mikilli ánægju með þessa árlegu fundi.

Reynsla íbúa höfuðborgarsvæðisins af lögreglu, öryggi og afbrotum

Frétt á lögregluvefnum þann 13.7.2009

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt niðurstöður könnunar á reynslu íbúa höfuðborgarsvæðisins af lögreglu, öryggi og afbrotum. Könnunin var framkvæmd af Capacent Gallup í apríl 2009 og náði til ríflega 2100 svarenda á höfuðborgarsvæðinu. Markmið könnunarinnar var að kanna viðhorf til lögreglunnar, ótta við afbrot og eigin reynslu af afbrotum. Skýrsluna með niðurstöðum könnunarinnar má nálgast hér.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eykst ánægja með störf lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um 4 prósentustig frá síðustu könnun. Tæplega 91% svarenda telur lögregluna skila góðu starfi í sínu hverfi við að stemma stigum við afbrotum, þar af telur fjórðungur svarenda að lögreglan skili mjög góðu starfi. Þá er viðhorf til aðgengis að lögreglunni er betra en í síðustu könnun. Ríflega helmingur svarenda (56%) telur innbrot vera mesta vandamálið í sínu hverfi.  Þetta er mun hærra hlutfall en mældist í síðustu könnunum, þegar um þriðjungur svarenda nefndi innbrot. Færri nefna nú umferðarlagabrot og eignaspjöll sem mesta vandamálið. Fleiri segjast nú mjög öruggir og færri mjög óöruggir þegar þeir ganga einir í sínu hverfi eftir að myrkur skellur á heldur en í síðustu könnun. Tæp 52% svarenda segjast mjög öruggir þegar þeir ganga einir í sínu hverfi eftir að myrkur skellur á. Þeim sem segjast mjög öruggir þegar þeir ganga einir í miðborginni eftir að myrkur skellur á fer fækkandi annað árið í röð (6,8%). Hinsvegar fjölgar þeim sem segjast frekar öruggir (30,2%). Tæp 63% segjast aldrei hafa upplifað aðstæður sínar þannig árið 2008 að þeir teldu líklegt að þeir yrðu fyrir afbroti hér á landi. Það er fimm prósentustigum minna hlutfall en í síðustu könnun.



Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?