Á fundi með foreldrafélagi Valhúsaskóla þann 12. apríl sl. voru kynntar niðurstöður á rannsókn sem Rannsóknir og Greining gerði um vímuefnaneyslu nemenda í 9. og 10. bekk s.l. vor.
Í ljós kom að unglingarnir á Nesinu standa sig mjög vel. Það er minni vímuefnaneysla meðal þeirra en meðaltal á landinu í heild sem og á höfuðborgarsvæðinu. Einnig kom í ljós að vímuefnaneysla unglinganna hefur minnkað umtalsvert á síðustu árum.
Verulegur árangur hefur náðst í forvörnum hér á landi. Árið 1995 voru íslenskir unglingar með háa tíðni á meiðslum og slysum vegna áfengisneyslu, eins drukku þeir oftar áfengi en flestir aðrir. Nú 8 árum síðar er stór munur til batnaðar á drykkjumynstri íslenskra unglinga. Greinilegt er að hér á landi hefur náðst betri árangur í að breyta drykkjuvenjum unglinga en flestar nágranna þjóðir okkar.
Hér er hægt að nálgast kynningu á niðurstöðum rannsóknarinnar.