Fara í efni

Kristín kvödd

Kristín Hannesdóttir, forstöðukona félagsstarfs eldra fólks á Seltjarnarnesi, var kvödd að viðstöddu fjölmenni á jólagleði félagsstarfsins í vikunni og fékk á sama tíma 15 ára starfsaldursviðurkenningu.
Kristín Hannesdóttir
Kristín Hannesdóttir

Kristín Hannesdóttir, forstöðukona félagsstarfs eldra fólks á Seltjarnarnesi, var kvödd að viðstöddu fjölmenni á jólagleði félagsstarfsins í vikunni.

Kristín hefur stjórnað félagsstarfinu af myndugleik allt frá árinu 2011, þegar hún tók við því hlutverki. Festa og fjölbreytni hafa einkennt félagsstarfið árið um kring undir stjórn Kristínar undanfarin ár og ánægja með starfsemina hefur eindurspeglast í góðri þátttöku.

Kristín hefur sinnt fleiri störfum á vegum Seltjarnarnesbæjar í gegnum tíðina og var hún því kvödd með starfsaldursviðurkenningu, fyrir að hafa unnið í meira en 15 ár hjá Seltjarnarnesbæ.

Bærinn þakkar Kristínu fyrir vel unnin störf og sitt framlag í þágu eldra fólks á Seltjarnarnesi.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?