Fara í efni

Góður kynningarfundur um nýtt deiliskipulag Kolbeinsstaðamýrar

Nýtt deiliskipulag Lambastaðamýrar (Kolbeinsstaðamýrar) var kynnt á íbuafundi sem haldinn var í knattspyrnuhúsi íþróttavallarins við Suðurströnd þriðjudaginn 13. maí sl.
Íbúafudur 13. máí 2014
Nýtt deiliskipulag Lambastaðamýrar (Kolbeinsstaðamýrar) var kynnt á íbuafundi sem haldinn var í knattspyrnuhúsi íþróttavallarins við Suðurströnd þriðjudaginn 13. maí sl. 

Íbúafundurinn var vel sóttur og góðar umræður fóru fram. Deiliskipulagið er unnið af ASK arkitektum undir stjórn skipulagsyfirvalda Seltjarnarness. 

Nýtt deiliskipulag felur aðallega í sér staðfestingu á núverandi ástandi, en einnig er gerð tillaga að uppbyggingu á nokkrum lóðum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofu Seltjarnarness Austurströnd 2, 2. hæð, virka daga kl. 8:20-14:00 frá 11. maí til og með 23. júní 2014. Einnig má sjá tillöguna á vefsíðunni www.seltjarnarnes.is, skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.

Ábendingum og athugasemdum skal skila til skipulagsfulltrúa eða á netfangið postur@seltjarnarnes.is eigi síðar en 23. júní 2014. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?