Fara í efni

Fáðu þér G-vítamín! Frítt í sund í dag í Sundlaug Seltjarnarness

Sundlaug Seltjarnarness tekur þátt í starfi Geðhjálpar og gefur frítt í sund í dag miðvikudaginn 17. febrúar til að gefa íbúum G-vítamín.
Sundlaug Seltjarnarness tekur þátt í starfi Geðhjálpar og gefur frítt í sund í dag miðvikudaginn 17. febrúar til að gefa íbúum G-vítamín.

Um G-vítamín á þorra:
Við þurfum öll að rækta og vernda geðheilsu okkar út lífið. Rétt eins og með líkamlega heilsu, þar sem öllum er ráðlagt að taka vítamín daglega, gerir margt smátt eitt stórt í geðrækt. Geðhjálp býður því 30 skammta af G-vítamíni á þorranum; ráðleggingar sem er ætlað að bæta geðheilsu. Það eina sem þarf að gera er að taka þátt og nýta sér G-vítamínið, sem er ókeypis og án aukaverkana!

G-vítamín dagsins: Hreyfðu þig daglega
Tímarnir hafa breyst. Kyrrseta er orðin algengari en áður en á sama tíma hafa hraði og streita aukist. Þess vegna hefur hreyfing aldrei verið mikilvægari. Ef þú hreyfir þig reglulega, minnkar streita og spenna og lífsgæðin aukast. Leyfðu árstíðunum að hafa áhrif á val þitt. Ekki ætla þér um of og hikaðu ekki við að biðja um leiðbeiningar eða aðstoð. Hreyfðu þig með öðrum eins oft og þú getur. Notaðu tónlist, ef þér finnst hún hvetja þig áfram eða hjálpa þér að slaka á. Finndu þann tíma sem hentar best og mundu eftir mikilvægi öndunar meðan á hreyfingunni stendur. Virtu líkama þinn, ekki festast í að breyta honum með ytri viðmið að leiðarljósi, einblíndu frekar á hið innra. Rannsóknir hafa sýnt að hreyfing vinnur með geðheilsu.

G-vítamínið er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur.
Við búum öll við geð, rétt eins og við erum öll með hjarta

Nánar á: www.gvitamin.is

G-Vítamín




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?