325. fundur Félagsmálaráðs Seltjarnarness haldinn í Mýrarhúsaskóla eldri, miðvikudaginn 15. nóvember 2006 kl. 17:00 – 19:20
Mættir: Berglind Magnúsdóttir, Magnús Margeirsson, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Guðrún Edda Haraldsdóttir, Þorsteinn Sveinsson, Sigrún Hv. Magnúsdóttir og Snorri Aðalsteinsson.
1. Trúnaðarmál.
1.1 Trúnaðarmál fært í trúnaðarmálabók 1. mál
1.2 Trúnaðarmál fært í trúnaðarmálabók 2. mál
1.3 Trúnaðarmál fært í trúnaðarmálabók 3. mál
1.4 Trúnaðarmál fært í trúnaðarmálabók 4. mál
2. Fjárhagsáætlun félagsþjónustu og félagslegs íbúðarhúsnæðis 2007 kynnt. Greint frá fundi með fjárhags- og launanefnd fyrr um daginn.
3. Fundargerð samráðshóps um áfengis- og vímuvarnir, dags. 26.10.2006 kynnt. Sigrún Hv. Magnúsdóttir gerði grein fyrir fundargerðinni. Samþykkt að vísa fundargerðinni til bæjarstjórnar.
4. Tekinn til afgreiðslu samningur um íslenskukennslu fyrir útlendinga við Mími sem frestað var á síðasta fundi og svarað fyrirspurnum um hann. Samningurinn samþykktur.
5. Beglind Magnúsdóttir gerði grein fyrir fundi Barnaverndarstofu með formönnum barnaverndarnefnda. Vakti hún athygli á að skv. Barnaverndarlögum skuli bæjarstjórn marka sér stefnu og gera framkvæmdaáætlun fyrir hvert kjörtímabil á sviði barnaverndar innan sveitarfélagsins. Nefndin þarf að setja sér starfsreglur um verkaskiptingu milli starfsmanna og nefndarinnar, sbr. 14. gr. Bvl.
6. Vakin athygli á fundi Lögreglunnar í Reykjavík með bæjarfulltrúum og fleirum þriðjudaginn 21. nóvember nk. kl. 16:00. Ákveðið að varaformaður félagsmálaráðs fari ásamt 2 – 3 starfsmönnum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:20
Berglind Magnúsdóttir (sign), Magnús Margeirsson (sign), Ragnhildur G. Guðmundsdóttir (sign), Guðrún Edda Haraldsdóttir (sign), Þorsteinn Sveinsson (sign), Sigrún Hv. Magnúsdóttir (sign), Snorri Aðalsteinsson (sign)