Fimmtudaginn þann 7.júní síðastliðinn var vorhátíð í Mýrarhúsaskóla. Hátíðin var einstaklega vel heppnuð. Vorhátíðin er haldin í samstarfi foreldra og starfsfólks skólans og fer fram árlega í skólalok.
Fimmtudaginn þann 7.júní síðastliðinn var vorhátíð í Mýrarhúsaskóla. Hátíðin var einstaklega vel heppnuð.
Vorhátíðin er haldin í samstarfi foreldra og starfsfólks skólans og fer fram árlega í skólalok.
Nemendur voru með uppákomur í sal skólans og á skólalóðinni voru foreldrar búnir að koma fyrir leiktækjum að ýmsum stærðum og gerðum nemendum til mikillar skemmtunar.
Foreldrafélagið bauð öllum nemendum, gestum og gangandi upp á grillaðar pylsur og drykki. Veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur og allir voru mjög ánægðir með daginn.
Myndir tók Lárus B. Lárusson