Skólaskrifstofa Seltjarnarness hefur auglýst tvær stöður aðstoðarskólastjóra lausar. Gísli Ellerup og Marteinn Jóhannsson eru að láta af störfum í vor fyrir aldurssakir.
Skólaskrifstofa Seltjarnarness hefur auglýst tvær stöður aðstoðarskólastjóra lausar.
Gísli Ellerup og Marteinn Jóhannsson eru að láta af störfum í vor fyrir aldurssakir eftir áratuga fórnfús störf fyrir grunnskóla Seltjarnarness.
Mikill áhugi er á stöðunum og hafa alls 23 umsóknir borist. Verið er að vinna úr umsóknunum og stefnt er að ganga frá ráðningum í næstu viku.