Þessa dagana er verktaki á vegum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að hefja framkvæmdir við 2. áfanga ljósleiðaratengingar heimila á Seltjarnarnesi.
Þessa dagana er verktaki á vegum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að hefja framkvæmdir við 2. áfanga ljósleiðaratengingar heimila á Seltjarnarnesi.
Í þessum áfanga er unnið við lagningu ljósleiðara á austanverðu Seltjarnarnesi jafnframt því sem haldið verður áfram við 1. áfanga sem nær yfir vesturhluta Nessins.
Uppbygging á ljósleiðara til heimila miðar almennt ágætlega. Nokkur fjöldi heimila hefur þegar verið tengdur við kerfið og nýtir sér þjónustu þeirra fyrirtækja sem miðla efni eða þjónustu á ljósleiðaraneti OR.