Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hefur í kjölfar bréfs frá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) falið Jónmundi Guðmarssyni bæjarstjóra að vinna nánar að áformum um byggingu hjúkrunarheimilis á svonefndri Lýsislóð* við Eiðsgranda. Skömmu fyrir jól ritaði Jónmundur bréf til borgarráðs Reykjavíkur með ósk um samstarf í málinu.

Vinnuhópur á vegum Seltjarnarnesbæjar er skilaði skýrslu síðastliðið haust um málefni aldraðra tilgreindi æskilega staðsetningu fyrir hjúkrunarheimili annars vegar inni í Seltjarnarnesbæ og hins vegar í vesturbæ Reykjavíkur, meðal annars á Lýsislóðinni. Um sameiginlegt hagsmunamál Seltirninga og Reykvíkinga að ræða og er þessi staðsetning að flestu leyti ákjósanleg fyrir bæði sveitarfélögin.
Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur þann 8. janúar var fjallað um erindi bæjarstjórans á Seltjarnarnesi og var borgarstjóra ásamt félagsmálastjóra falið að hefja viðræður um málið.
ÍAV er að hefja vinnu við deiliskipulag Lýsislóðarinnar og mun í þeirri vinnu taka mið af áhuga Seltjarnarness og Reykjavíkur á byggingu hjúkrunarheimilis á lóðinni. Ljóst er að áhugi er fyrir málinu hjá báðum sveitarfélögunum Reiknað er með að fyrirhugað hjúkrunarheimili hafi að lágmarki 60 rými. Seltjarnarnesbær á nú þegar 14 rými fyrir aldraða á Reykjavíkursvæðinu, flest í Hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi. Miðað við samsetningu íbúa Seltjarnarness er líkleg þörf í framtíðinni jafnan um 30 rými.
*Lýsislóð liggur á milli Grandavegar og Lágholtsvegar