Fara í efni

Verkfalli aflýst er Efling og SÍS sömdu í nótt. Skólastarf hefst í dag samkvæmt fyrirkomulagi í tilkynningu skólastjórnenda fyrir helgi.

Efl­ing – stétt­ar­fé­lag og samn­inga­nefnd­ Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga und­ir­rituðu kjarasamn­ing rétt fyrir miðnætti og skólastarf í Grunnskóla Seltjarnarness hefst því í dag eftir að skólastofur hafa verið ræstar.

Efl­ing – stétt­ar­fé­lag og samn­inga­nefnd­ Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga und­ir­rituðu kjarasamn­ing rétt fyrir miðnætti eftir mikla fundasetu alla helgina í húsakynnum ríkissáttasemjara. Skólastarf í Grunnskóla Seltjarnarness hefst í dag eftir að skólastofur hafa verið ræstar. Foreldrar eru hvattir til að skoða tölvupósta frá skólastjórnendum sem sendir voru út sl. föstudag með skipulagi og tímasetningum á komu nemenda í skólann ef samið yrði eins og nú hefur verið gert. 




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?