Boðað verkfall félagsmanna í Félagi Leikskólakennara (FL) kemur til framkvæmdar mánudaginn 22. ágúst, ef samningar nást ekki fyrir þann tíma.
Boðað verkfall félagsmanna í Félagi Leikskólakennara (FL) kemur til framkvæmdar mánudaginn 22. ágúst, ef samningar nást ekki fyrir þann tíma.
Leikskólakennarar við Leikskóla Seltjarnarness eru félagar í FL og koma því ekki til vinnu eftir helgina, ef kemur til verkfalls. Allar stöður deildarstjóra leikskólans eru mannaðar leikskólakennurum. Það er ekki ljóst á þessari stundu hvort loka beri leikskólanum, komi til verkfalls, en samræður eru í gangi um viðmiðunarreglur í verkfalli
Komi til verkfalls mun Seltjarnarnesbær ekki innheimta gjöld fyrir þá daga sem leikskólinn verður lokaður af þeim sökum, auk þess sem leikskólagjöld fyrir septembermánuð verða ekki send til innheimtu fyrr en að verkfalli loknu.