Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst í Kringlunni og Smáralind mánudaginn 23. ágúst og er opin alla daga vikunnar kl. 10:00-22:00.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst í Kringlunni og Smáralind mánudaginn 23. ágúst.
Opið er alla daga vikunnar kl. 10:00 - 22:00. Í Smáralindinni fer atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fram á 1. hæð, nálægt inngangi í norðausturhluta, og í Kringlunni á 3. hæð, bíógangi.
Á kjördag, laugardaginn 25. september verður eingöngu opið á 1. hæð í Smáralind kl. 10:00 - 17:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.
Allar nánari upplýsingar eru á vef Sýslumannsembættisins og á vef Stjórnarráðsins.