Fara í efni

Umferðardagar

Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um öryggi í umferðinni í Grunnskóla Seltjarnarness dagana 4. og 6. maí. Kennarar munu leggja aukna áherslu á að ræða við nemendur um hættur í umferðinni og notkun hjálma ásamt því að vinna verkefni tengd umferðinni.

Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um öryggi í umferðinni í Grunnskóla Seltjarnarness dagana 4. og 6. maí.

Kennarar munu leggja aukna áherslu á að ræða við nemendur um hættur í umferðinni og notkun hjálma ásamt því að vinna verkefni tengd umferðinni.

Teikning af SeltjarnarnesiÖrn Kr. Arnarson íþróttakennari í Valhúsaskóla var með fræðslu fyrir nemendur í 10. bekk í sl. viku um forvarnir og öryggi í umferðinni, en senn að líður að því að þessir nemendur megi byrja að læra á bíl. Nemendum var m.a. sýnt myndband sem fjallar um stúlku sem lenti í alvarlegu umferðarslysi þegar hún var sextán ára og fjallað var um hvaða afleiðingar það hafði fyrir hana og fjölskyldu hennar.

Vakin er athygli á því að hraðaskilti sem sýnir ökumönnum á hvaða hraða þeir aka er staðsett til skiptis á nokkrum stöðum í bænum.

Lögreglan og fulltrúi frá Umferðaskólanum "Ungir vegfarendur" fræða elstu börn leikskólanna um hættur og öryggi í umferðinni en þessi hópur byrjar í grunnskóla næsta haust.

Slysvarnardeild kvenna verður með árlega reiðhjólaskoðun 7. maí á lóð Mýrarhúsaskóla. Við hvetjum foreldra til að mæta með börnum sínum og láta yfirfara hjólin og hjálmana og munum að það er aldrei of varlega farið.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?