Fara í efni

Umfangsmikið gatnagerðarátak í bígerð

Samkvæmt fjárhagsáætlun verður fyrsti áfangi af fjórum í gagngerum endurbótum á gangstéttum og götum bæjarins meðal helstu verkefna sumarsins.

Malbikun gatnaSamkvæmt fjárhagsáætlun verður fyrsti áfangi af fjórum í gagngerum endurbótum á gangstéttum og götum bæjarins meðal helstu verkefna sumarsins.

Fyrir liggur nákvæm úttekt ráðgjafa bæjarins á ástandi allra gatna í bænum sem verður til grundvallar endurbótunum.

Ljóst er að verkefnið, sem var meðal helstu stefnumiða meirihluta bæjarstjórnar í bæjarstjórnarkosningunum síðast liðið vor, er bæði umfangsmikið og kostnaðarsamt en felur í sér þarfa bragarbót á umhverfi bæjarins.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?